Kornhlaðan

Fundarsalur í hjarta borgarinnar

80 manns til borðs
Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur
Fullkominn 3D myndvarpi
Hljóðkerfi fyrir ræðuhöldog tónlist
Veisluþjónusta fyrir matar- og kaffiveitingar


Nánari upplýsingar

Kornhlaðan er þekktur veislu- og fundarsalur staðsett þar sem áður var Lækjarbrekka.

Nýir eigendur hafa tekið við salnum og hafa gert hann enn fallegri en áður með þægilegum hægindastólum við hringborð, plöntum og afslappaðri stemmingu. 

Kornhlaðan tekur um 80 manns til borðs og 150 manns í standandi veislur og viðburði

Salurinn er notaður bæði sem viðburðasalur White Lotus, fyrir tónleika og menningarviðburði sem og fyrir veisluhöld og fundi.

Staðsetning er einstök við Bankastræti 2 í hjarta borgarinnar þangað sem allir rata og borgin iðar af skemmtilegu mannlífi.

Þeir sem koma á bílum geta lagt í Kolaporti bílastæðahús sem er í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá staðnum.

Vínveitingasala er á staðnum og góður bar og hægt er að panta fjölbreyttan og  góðar matarveitingar og kaffiveitingar frá veisluþjónustu staðarins.

Á hæðinni er hinn rómaði veitingastaður Mama Reykjavík sem býður uppá ljúffengan Vegan matseðil fyrir þá sem vilja gera reglulega vel við sig. 

Boðið er uppá fullkominn myndvarpa sem í háum gæðum þar sem háskerpu myndgæðum er varpað á veggin við enda salarinn. Einnig er gott hljóðkerfi fyrir tal og tónlist á staðnum.


Salurinn hentar einnig vel fyrir brúðkaup, árshátíðar, afmæli, fermingarveislur og útskriftir.

Einnig er gott að halda tónleika og menningarviðburði í húsinu.

Athugið að á næstu dögum koma nýjar myndir af staðnum sem gefa gleggri mynd af nýjum og þægilegri húsgögnum.

©www.salir.is - afritun og endurbirting óheimil.

Kornhlaðan
Bankastræti 2, 101 Reykjavík
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar