Því miður hefur staðnum verið lokað
og er ekki í útleigu lengur.
Anna Jóna
Anna Jóna er notalegur veitingastaður í miðbæ Reykjavíkur. Mikið er lagt upp út hönnun og útliti staðarins og falleg húsgögn og góð tónlist búa til einstaka upplifun fyrir gesti.Veitingastaðurinn skiptist upp í borðsal fyrir matargesti, langt barborð og þægilega setustofu "lounge"
Setustofa
Setustofan hentar vel fyrir hópa allt að 30 manns. Tekur allt að 75 manns í standandi opnanir og veislur. Góður staður fyrir þá sem vilja kom saman og fá sér drykk og léttar veitingar miðbænum áður en farið er út á næturlífið í borginni.
Bláa herbergið - bíósalur fyrir 28 manns
Inn af setustofunni er Bláa herbergið, fullbúinn glæsilegur bíósalur fyrir 28 manns í sæti. Salurinn er með þægilegum bíóstólum og litlum borðum við stólana. Sýningarvélin er nettengd og því auðvelt að tengjast því efnir sem á að birta. Kröftugt hljóðkerfi er í salnum ásamt stýringu á ljósi.
Bláa herbergið hentar fyrir kvikmyndakvöld, kynningar, námskeið og fundi. Flottur staður fyrir tónleika og leiksýningu og uppistand. Skoða nánar
Karaoke
Auðvelt er að setja upp Karaoke stemningu í Bláa herberginu, lækka ljósin, hækka tónlistina og njóta þess að syngja saman með góðar veitingar í salnum.
Allur staðurinn fyrir einkasamkvæmi
Anna Jóna er veitingastaður sem býður upp á matarveitingar og drykki alla daga fram á kvöld.
Fyrir stærri hópa og fínni veislur eins og brúðkaupsveislur eða árshátíðir er hægt að leigja allan staðinn í einkasamkvæmi.
Anna Jóna er frábær staður fyrir hópa
Staður til að koma saman seinnipart dags eða á kvöldin til að fá sér ljúffenga drykki og veitingar í miðbæ Reykjavíkur. Hlusta á góða tónlist, horfa saman á kvikmynd eða syngja í Karaoke.
©www.salir.is - afritun og endurbirting óheimil.