Bryggjan Brugghús er staðsett á Grandagarði við Reykjavíkurhöfn í miðbæ Reykjavíkur. Fjölbreytt aðstaða er í húsinu til veisluhalds og hægt er að velja mismunandi stóra sali allt eftir stærð hópsins og stemningunni.
Bruggsalurinn 90 manns
Bruggsalurinn er fjölnota salur sem hentar fyrir veislur, fundi, tónleika og menningarviðburði.
Salurinn tekur um 90 manns í sæti og hægt er að raða upp borðum í salinn á fjölbreyttan hátt. Einnig er hægt að hafa þar standandi veislur og viðburði og tekur þá salurinn allt að 150 manns.
Í salnum er upphækkað gólf sem hægt er að nýta sem svið fyrir hljómsveit eða skemmtikrafta en þar er einnig færanlegt svið og þá er uppækkun notuð fyrir borð.
Hægt er að loka Bruggsalnum af frá veitingasal.
Bryggjan Brugghús framleiðir ýmsar tegundir af gæða-bjór.
Í boði er fjölbreytt úrval veitinga fyrir hópa allt frá uppdekkuðum galaveislum, hlaðborð og pinnamat. Einnig er hægt að fá sérbjór frá Brugghúsinu og bjór á bjórkútum á góðu verði.
Bryggjan miðjurýmið - 160 manna salur
Bryggjan er stóra miðjurýmið og tekur um 160 manns í sæti. Hér má skoða Bryggjuna Bryggjusalurinn - 30 manna salur
Bryggjusalurinn er góður er fyrir smærri hópa sem vilja vera með sér sal útaf fyrir sig. Hér má skoða Bryggjusalinn
Bryggjan Brugghús - allt húsið
Það er líka hægt að leigja allt húsið sem tekur 300 manns í sæti eða um 400 manns í standandi veislur. Sjá nánar hér: Bryggjan brugghús stórveislur
©www.salir.is - afritun og endurbirting óheimil.