...
Spennandi salur í gömlu kexverksmiðju Frón við Skúlagötu. Salurinn er grófur í verksmiðju stíl, hátt til lofts og vítt til veggja. Einstaklega flottur bar, fatahengi og góð klósettaðstaða.
Á efri hæðinni er KEX hostel og veitingastaðurinn Flatus sem sjá um veitingar eftir óskum en einnig er hægt að panta aðrar veitingar frá samstarfsaðilum okkar.
Salurinn hentar vel fyrir allskyns veislur og möguleikarnir endalausir. Hentar vel fyrir standandi veislur en einnig er möguleiki að leigja borð og stóla hef að um “fínni” veislur er að ræða.
Salurinn hefur verið notaður fyrir fermingar, brúðkaup, fyrirlestra, menningarviðburði, bjórkvöld, tónleika svo fátt sé nefnt.
Staðsetningin er frábær - í miðbæ Reykjavíkur og aðgengið í salinn er gott, beinnt inn af Skúlagötu þar sem eru næg bílastæði á kvöldin.
Sendið okkur fyrirspurn ef þið viljið fá nánari upplýsingar.
©www.salir.is - afritun og endurbirting óheimil.