Þessi fágaði fjölnotasalur tekur allt að 64 gesti í sæti og býður upp á einstök þægindi. Salurinn er búinn sérhönnuðum innréttingum og húsgögnum, fyrsta flokks tæknibúnaði og skartar draumkenndu útsýni yfir Bláa Lónið. Hvort sem í vændum er stórveisla eða stafræn ráðstefna.
Innifalið:
• 2 x 98" skjáir
• Meyer hljóðkerfi
• 2x myndavélar NC 12x80 Optical ZoomUsb-c og HDMI tengi í tölvu
• Þráðlaus tenging fyrir tölvur með Airserver og • Teamsroom
• Púlt með hljóðnema
• Þráðlaus hljóðnemi
• Sennheiser-hljóðnemi í lofti herbergis
• Hljóðnemi fyrir áhorfendur eða fundarhald
• Snertiskjár á vegg til að stjórna rýminu
• Logitech snertiskjár til að stjórna Teams fundum
Fundar- og veislusalir Bláa Lónsins
Með
stórbrotnu útsýni og náttúrulegri útlitshönnun bjóða fundar- og
veislusalir Bláa Lónsins upp á einstakt og skapandi umhverfi fyrir hvers
kyns viðburði.
Við
bjóðum fjögur glæsileg rými til margvíslegra nota sem útbúin eru
nýjustu tækni. Hvert sem tilefnið þá er töfrandi og steinefnaríkt vatnið
skammt undan og gestir geta dýft sér í lónið til að endurnýja kraftanna
eftir daginn.
Haltu einstakan viðburð í einu af undrum veraldar.
Sendið okkur fyrirspurn og við munum með ánægju veita þér upplýsingar og aðstoð við að skipuleggja farsælan og minnisstæðan viðburð í Blue Lagoon Iceland.