Á Hvalasafninu á Húsavík er frábær aðstaða fyrir fundi og ráðstefnur, ársfundi og kynningar.
Fundarherbergi fyrir 12 manns
Fundarherbergið hentar vel fyrir smærri hópa.
Herbergið er staðsett á 3. hæð Hvalasafnsins með fallegu útsýni yfir höfnina og Kinnafjöll.
Í herberginu er 50 tommu sjónvarp með HDMI tengi.
Leiguverð er 25.000 kr.
Kaffi er innifalið í leiguverði.
Ráðstefnusalur fyrir 45 manns
Aðstaðan rúmar allt að 45 manns í leikhúsuppröðun. Einnig má stilla upp 5 skrifborðum fyrir hópavinnu sem rúma 3-6 manns hvert.
Í salnum er skjávarpi, Bose hljóðkerfi og hljóðnemi sem má tengja við tölvu.
Leiguverð 50.000 í allt að 3 klukkustundir.
Kaffi er innifalið.
Hvalasafnið
Safnið er staðsett í miðbæ Húsavíkur og er því stutt að fara í hádegis eða kvöldverði á veitingarhúsunum, Gamla Bauk, Sölku eða Lókal.
Hægt er að bæta við ljúffengum kaffiveitingum og skoðunarferð með leiðsögn um Hvalasafnið.
Í nágreni Hvalasafnsins er fjölbær
afþreying og þar má nefna:
Sjóböðin - GeoSea
Hvalasakoðun
Húsavík Öl - heimsókn í brugghúsið