Veislusalurinn á SKÝ er staðsettur á 8. hæð á Ingólfsstræti 1 í miðborg Reykjavíkur.
Hátt er til lofts í salnum og er hann bjartur með stórum gluggum sem bjóða upp á stórkostlegt útsýni yfir miðborgina, Hörpu og Faxaflóann.
Fjallasýnin er því einstök. Útgengt er frá salnum út á stórar svalir sem bjóða upp á útsýni yfir Faxaflóann.
Tvær lyftur eru á staðnum þannig að aðgengi að salnum er mjög gott.
Hægt er að stilla salnum upp á marga vegu og tekur hann 62 gesti í sæti eða 85 gesti í standandi veislur.
Gott úrval er á veitingum með salnum bæði pinnahlaðborð, brunchhlaðborð og veisluhlaðborð allt eftir því hvernig veislu verið að að skipuleggja.
Gott hljóðkerfi er í salnum og hægt er að stilla upp sýningartjaldi og skjávarpa.