Fallegt yfirbragð
Til að gefa veislunni alveg einstakt og flott yfirbragð fer vel að bjóða uppá fallegan og ljúffengan drykk. En það getur verið snúið blanda og það krefst þekkingar að velja rétt glös, innihald og efni og blanda þannig að úr verði ljúffengur kokteill sem hentar tilefninu.
Afþreying að fylgjast með
Það er einnig góð afþreying að fylgjast með reyndum barþjóni blanda glæsilegan kokteil og þá fer vel að vera fallega klæddur í sparifötunum með flottan spari-drykk í hönd.
Reykjavík Cocktails er hópur reyndra barþjóna sem taka að sér að útbúa kokteila í veislum. Þeir leggja til allt sem til þarf annað en áfengið sjálft. þ.e rétt glös, áhöld og efni og umfam allt reynslu og þekkingu. Þurís, krydd, ávextir, eldur, rétt glös fyrir drykkinn og fagleg framkoma á barnum. Einnig er veitt ráðgjöf um hvaða áfengi þarf til og hversu mikið magn.
Hvort sem blandað er eftir klassískum og þekkturm uppskriftum eða óhefðbundnum og djörfum þá skiptir framsetningin og aðferðin öllu máli.
Fjöldi barþjóna sem koma á staðinn fer eftir stærð viðburðarins. Rvk Cocktails býður uppá þjónustu í heimahúsum og smærri veislum sem og í stærri veislum og viðburðum. Brúðkaupsveislur, árshátíðar, afmæli fyrirtækjaviðburðir.
Veisluþjónustan gæti verið fólgin í að útbúa fordrykki fyrir matarboð, kokteila fyrir kokteilpartý, opnanir og standandi veislur. Einnig hægt að velja drykki sem henta eftir máltíð sem eftirréttur.
Þematengdir drykkir eru einnig mjög vinsælir þegar veislan sjálf hefur fyrirfram ákveðið þema eins og Bollywood, Grate Gatsby, Pink flamingo delights...
Dæmi um drykki:
Espresso Martini, Moscow Mule, Aperol Spritz
Summer Breeze, Smash My Mint Up, You Sexy Thing, Dillusion, Bellini, Basil Gimlet, Whiskey Sour, Margarita, Old Cuban