Blik Veislusalur

Golfskálinn í Mosfellsbæ salur með einstöku útsýni

200 manns til borðs
300 manns í standandi veislur og móttökur
Einstakt útsýni og stórir gluggar
Hægt að ganga út á verönd sem umlykur salinn
Rúmgóð móttaka
Stór og fallegur bar í salnum
2 skjávarpar og sýningartjöld í salnum
Hljóðkerfi fyrir tal og tónlist
Fjölbreyttar veitingar úr veislueldhúsi Blik Bistro
Hliðarsalur með skjávarpa og sýningartjaldi


Nánari upplýsingar
Blik Veislusalur skartar án efa einu fallegasta útsýni sem hægt er að finna úr veislusal á Reykjavíkursvæðinu. Falleg birta og veðurbrigði móta stemninguna í salnum og er útsýnið afar myndrænt.

Blik Veislusalur er í nýju og fallegu húsnæði Golfklúbbsinns í Mosfellsbæ sem staðsett er neðan við bæinn í aðeins 15 mín. akstursfjarlægð frá miðbæ Reykjavíkur.

Mjög gott aðgengi er að salnum og næg bílastæði. Anddyrið er rúmgott og nóg pláss fyrir fordrykk og spjall áður en sest er til borðs.

Í anddyrinu er stór og fallegur bar og umhverfis salinn er verönd sem hægt er að ganga út á og njóta útsýnis og ferska loftsins.

Salnum er hægt að raða upp á fjölbreyttan hátt og blanda saman hringborðum og langborðum.

Í salnum eru 2 skjávarpar og 2 sýningartjöld og gott hljóðkerfi fyrir tal og tónlist.

Í anddyrinu er hliðarsalur sem fyrir t.d myndasýningu eða fundarsal sé þess óskað.

Allar veitingar í salnum koma frá veislueldhúsi Blik Bistro sem sjá um veitingar í húsinu.

Athugið að salurinn er ekki leigður út á sumrin þegar golftímabilið stendur sem hæst.








Blik Veislusalur
Æðarhöfði 36, 270 Mosfelsbær
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar