Aldamót Bar - Café er góður staður fyrir hópa á besta stað í miðbæ Reykjavíkur.
Salurinn er fallega hannaður með þægilegum húsgögnum og fallegri lýsingu.
Mögulegt er að nýta sér inngang í salinn sé þess óskað og vera til dæmis með útikerti við innganginn.
Salurinn er aðskilinn frá barnum og er með sér salernisaðstöðu fyrir gesti og gott hljóðkerfi fyrir tónlist.
Salurinn er lánaður gegn því að kaupa fyrirfram ákveðið magn af veitingum frá Bar við Kirkjutorg.
Mögulegt er að vera með til dæmis ákveðið magn að flöskum á ís í salnum fyrir gesti eða bjórkút og dælu.
Einnig er boðið uppá spennandi pinnamat eða fingramat sem passar vel með góðum drykk.
Ekki er mögulegt að vera með eigin veitingar í salnum.
Salurinn hentar sérstaklega vel fyrir fyrirtækjahópa, afmæli, endurfundi og alla þá sem vilja hittast og eiga góða stund í miðbæ Reykjavíkur.
Opnunartími er til 23:00 samkvæmt lögum sóttvarna þar til annað kemur fram





