Sem stendur er Messin Granda ekki í útleigu
Messinn er fallegur veislusalur í miðborginni. Salurinn er í sama húsi og Sjóminjasafn Reykjavíkur og vísar út á höfnina.
Út um stóra gluggana er horft niður á hafflötinn og framan við salinn er hægt að ganga út á bryggju þar sem eru borð og stólar.
Salurinn tekur 130 manns í sæti við borð en auðveldlega 200 manns í standandi veislur og móttökur.
Fyrir miðju er stórt framreiðsluborð fyrir veitingar og bar. Í salnum er færanlegt svið og hljóðkerfi fyrir dinnertónlist og ræðuhöld.
Boðið er uppá fjölbreyttar veitingar að þínum óskum. Smáretti og pinnamat, hlaðborð eða margrétta veisluseðil.
Einnig er hægt að fá kaffiveitingar að óskum.
Ekki er greitt fyrir salinn þegar kaup á veitingum fara yfir ákveðna upphæð.










