Innandyra er eins og að stíga inní annan heim, bogadregið þakið og fallegt og vandað yfirbragð myndar alveg einstaka og notalega stemningu.
Fullkomin LED lýsing er í salnum þar sem hægt er að breyta um liti
og styrk ljóssins eftir stemningu og einstakega flottur Bar er fyrir
miðju salarins.
Fyrir utan er skemmtilegt útisvæði fyrir
borð og stóla sem nýtist vel á sólríkum dögum. Þar er einnig hægt að
setja upp Veislutjald og með því tvöfalda gestafjölda Braggans.
Bragginn Bistro sér um veitingar í Bragganum og býður uppá fjölbreytt úrval veitinga allt eftir tilefni.
Bragginn er aðeins leigður út með veitingum.