SOHO Catering veisluþjónusta býður uppá gómsætar veitingar fyrir veislur og viðburði.
Hefðbundin kaffihlaðborð, spennandi fermingarveislur og veitingar í brúðkaup með glæsibrag, árshátíðar, jólahlaðborð og þorrablót. Allt frá smáréttum og pinnamat yfir í margra rétta gala-dinner.
Áhersla er lögð á samvinnu við þann sem er að halda veisluna. Veita aðstoða við samsetningu á veisluréttum og gefa góð ráð um val á hvaða vín passar með hverjum rétt.
Brauðmeti og bakkelsi er heimabakað og grænmeti og krydd heimaræktað sé þess kostur.
SOHO byggir á mikilli og fjölbreyttri reynslu af veisluhaldi í mörgum góðum veislusölum á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum.
Þekkingu á t.d borðbúnaði, eldhús aðstöðu og hvernig er að taka á móti og bera fram veitingarnar á hverjum stað fyrir sig er mikilvægur þáttur í að gera veisluna fullkomna.
Örn Garðarson er yfir matreiðslumeistari á SOHO
• Lærði matreiðslu á Brauðbæ hjá Gísla og Bjarna
• Frakkland: hótel í Avignon París Hótel de Crillon
• Grillið Hótel Saga
• Yfirkokkur á Lækjarbrekku
• Glóðin Keflavík
• Soho Catering
• Kokkalandslið Íslands liðsstjóri og framkvæmdarstjórn
• Dómari í erlendum matreiðslukeppnum
• Sveinsprófsdómari