Góð lofthæð er í salnum, stórt framreiðsluborð og lítið en notadrjúgt móttökueldhús.
Hljóðkerfi er í salnum fyrir tal og tónlist ásamt skjávarpa.
Hægt er að raða borðum og stólum upp eftir óskum hvers og eins og rúmar salurinn vel um 120 manns í sæti en allt að 200 í standandi veislur.
Hægt er að ganga út á rúmgóðar svalir til að fá sér ferskt loft og njóta útsýnisins á meðan veislu stendur.
Salurinn hentar því vel fyrir fermingarveislur, erfidrykkju, brúðkaup og ættarmót. Einnig góður fyrir fundi og námskeið.
Athugið! Leigutakar verða að vera orðnir 20 ára gamlir til að leigja salinn. Veislugestir þurfa einnig almennt að vera orðnir 20 ára gamlir.
Íþróttafélagið Grótta áskilur sér rétt til að aflýsa og loka veislum þar sem þessum reglum er ekki fylgt.