Rokksafn Íslands er glænýtt safn um sögu popp- og rokktónlistar á Íslandi. Safnið er staðsett í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Þar er sagan tónlistar á Íslandi sögð allt frá árinu 1830 til dagsins í dag á mjög lifandi máta með aðstoð ljósmynda, skjáa og skjávarpa. Gestir fá afhenta spjaldtölvu svo þeir geti kafað enn dýpra í söguna.
Á safninu er hljóðbúr þar sem gestir geta leikið lausum hala og prófað sig áfram á rafmagnstrommusett, gítar, bassa og hljómborð.
Á meðal þeirra hluta sem hægt er að skoða á safninu er trommusettið hans Gunnars Jökuls sem hann notaði m.a. á ...Lifun með Trúbrot, LED-ljósabúning Páls Óskars, tréskúlptúr af reggí-hljómsveitinni Hjálmum, flugvélabúningur úr myndbandi Sykurmolanna við lagið Regínu, sex metra háar myndir af Hljómum, Björk, Sigur Rós og Of Monsters and Men og þannig mætti lengi telja.
Opnunartími :
11:00-18:00
Á safninu geta gestir sest niður, notið tónlistarinnar og fengið sér frábæran kaffibolla frá Kaffitár sem er einmitt með höfuðstöðvar í Reykjanesbæ. Kaffitár leggur mikla ástríðu í kaffið og er það Rokksafninu mikil ánægja að bjóða gestum upp á kaffi frá Kaffitár. Á safninu geta gestir einnig fengið te, sódavatn, gos, safa og fleira.
Rokk-búðin?Á safninu geta gestir keypt alls kyns varning tengdan rokksögunni s.s. bækur, geisladiska, heimildarmyndir og boli merkta safninu. Við mælum með að enginn fari heim án þess að rokka sig aðeins upp af efni.
Gestir safnsins fá lánaða spjaldtölvu og heyrnartól við komuna á safnið. Á spjaldtölvunni er forrit sem við köllum Rokk-appið. Það gerir gestum kleift að kafa dýpra í söguna og þá tónlistarmenn sem fjallað er um á safninu. Á veggjum safnins eru upplýsingar um sögu ákveðinna tímabila og tónlistarmenn en appið gerir gestum kleift að kafa enn dýpra í söguna. Í appinu er miklu meira af upplýsingum, hægt að hlusta á tónlist, horfa á tónlistarmyndbönd og viðtöl við tónlistarmenn.