Veisluskálinn Mýrarkot:
• Tekur 40 manns í sæti
• 15 mín. akstur frá miðbæ Reykjavíkur
• Lítil eldhúsaðastaða inni í skálanum
• Úti eru tvö stór grill ásamt ísskáp
• Langborð og setustofa, bluetooth hátalari
• Salurinn leigist án veitinga og borðbúnaðar
Veisluskálinn Mýrarkoti er staðsettur á Lambhaga stutt frá Bauhaus við Úlfarsfellið. Skálinn tekur allt að 40 manns í sæti og setið er við 6 langborð í rómantísku umhverfi við notalega tónlist.
Veisluskálinn hentar vel fyrir hverskyns boð, fyrirtækjaferðir og hópefli. Einnig fyrir fermingarveislur, brúðkaup, afmæli og fleira.
Hægt er að taka á leigu útigrill og geta gestir þá grillað á staðnum. Leiguverð á grillum er 20.000
Athugið að gestir þurfa að koma með öll aðföng þar með talið borðbúnað og mikilvægt er að því sem þarf að henda sé vandlega flokkað.
Húsin leigjast út til kl. 22:00
Verð fyrir leigu á veisluskálanum er 100.000 krónur, með þrifum.
_____
• Sauna, heitir pottar 2x7 tonn, kalt kar
• Tveir nýir búningsklefar, 2 wc, útisturta
• Yfirbyggð verönd með borðum og stólum fyrir 20 manns
• Vinsælt hjá klúbbum, gæsun og steggjun
• Hámarskfjöldi gesta í hóp eru 20 manns
Glænýtt SPA er á staðnum og 2 stórir heitir pottar (2x7 tonn) ásamt sauna og útisturtu, potti og köldum potti. Sturtur og nýir rúmgóðir og notalegir búningsklefar.
Skjólverönd umlykur pottana í fallegum trjálundi þaðan sem hægt að virða fyrir sér næturhiminninn og norðurljósin þegar færi gefst.
Þar eru hitarar og aðstaða til snæða léttar veitingar undir yfirbyggðri verönd með borðum og stólum fyrir allt að 20 manns.
Innifalið í hópaleigunni er: hárhandklæði, hárblásarar, shampoo, skór - ásamt allri aðstöðunni.
Aðeins tekur um 15 mín. að aka að Mýrarkot SPA frá miðbæ Reykjavíkur og um 5 mín. frá Select verslun á Vesturlandsvegi.
Húsin leigjast til kl. 22:00
Baðaðstaðan er eingöngu leigð út fyrir hópa í 4 klst. í senn. Verð fyrir SPA er 100.000 kr.
©www.salir.is