Sólon Íslandus Bankastræti er án efa eitt af þekktari kennileitum miðborgarinnar. Á neðri hæð er veitingastaðurinn sem býður upp á ljúffenga rétti frá morgni til kvölds.
Á efrihæð Sólons er veislusalur og kokteil bar.
Nýlega hefur staðurinn allur verið endurnýjaður. Þá voru settir upp þægilegar hringbásar fyrir 8-10 manns við hvert borð. Glæsilegur bar, notaleg lýsing og afar vandað hljóðkerfi.
Veislusalurinn tekur um 80 manns í sæti og 130 manns í standandi veislur og viðburði.
Salurinn er með sviðsupphækkun, góðu hljóðkerfi, hljóðnemum og myndvarpa og hentar því vel bæði fyrir veislur sem og menningarviðburði, uppistand, tónleika og fundi. Einnig er hægt að nýta sviðið fyrir háborð í veislum.
Hægt er að opna út á litlar svalir sem vísa út á Laugaveginn
Fyrir veisluhald er salurinn frábær. Glæsilegt yfirbragð og auðvelt að finna í miðbæ Reykjavíkur. Næg bílastæði er í bílastæðahúsum örstutt frá.
Veitingar
Boðið er upp á úrval af smáréttum sem henta vel í veislur og viðburði og góðir hópmatseðlar. Þá er áhersla er lögð á ljúffenga kokteila á góðu verði og góðu úrvali af víni og bjór.
Í veislum og viðburðum á daginn er salurinn bjartur og fallegur og þá er hægt að panta kaffiveitingar.
Viðburðahús fyrir 250 - 300 manns
Mögulegt er að leigja allt húsið, bæði veislusalinn á efrihæð og veitingastaðinn á neðri hæð saman fyrir stærri veislur. Þá rúmar staðurinn allt að 300 manns í standandi viðburð og úr verður eitt flottasta viðburðahús borgarinnar. Miðar það við að veitingastaðnum sé lokað á meðan veislu stendur
Salurinn er eingöngu leigður út með veitingum.
Leyfi til skemmtanahalds fram eftir nóttu (03:00)
©www.salir.is