Í húsakynnum KSÍ (Knattspyrnusambands Íslands) í Laugardal eru 2 rúmgóðir veislusalir og fundarsalir til leigu.
Veislusalurinn Vörnin tekur um 90 manns í sitjandi veislur og um 150 manns í standandi veislur, fundi eða fyrirlestra.
Umhverfið í Laugardalnum er einstaklega fallegt, næg bílastæði og gott aðgengi.
Í salnum er fullkomið hljóðkerfi fyrir tal og tónlist. Myndvarpi og flatskjáir til afnota ef þess þarf.
Veisluþjónusta Vox sér um veitingar í salnum.
Hægt er að leigja salinn án veitinga og þá fylgir starfsmaður með.
Ekki er leyfilegt að vera með salinn lengur en fram að miðnætti á kvöldin.



