Við erum með aðstöðu fyrir hópa af öllum stærðum fyrir öll tilefni. Áttu afmæli bráðum eða er hópurinn að hittast? Hópurinn fær að vera í friði frá öllum öðrum en með fulla þjónustu af okkar hálfu.
Hressó býður upp á margskonar möguleika fyrir veislur og viðburði og bæði er hægt að leigja aðstöðu innandyra og í okkar vel gróna garði sem er eitt helsta aðalsmerki staðarins. Hressó er einn af fáum stöðum í miðbæ Reykjavíkur með svo góðri aðstöðu fyrir garðveislur, sumargleði og huggulega útitónleika.
Við bjóðum upp á bjórkúta, bollur, skot og sódapopp á góðu verði. Hringdu eða sendu e-mail og fáðu tilboð fyrir þinn hóp.




