Verbúðin gamla höfnin

Nýuppgerður salur með sjarmanum sem fylgir gamalli verbúð - við gömlu Reykjavíkurhöfn

Leigist án veitinga á hagstæðu verði
Fullkomin sýningar aðstaða fyrir kvikmyndir (HD)
Hljóðkerfi fyrir tal og tónleika
Ný uppgerður salur
Fallegt umhverfi við gömluhöfnina
Skipulagning funda eða viðburða


Nánari upplýsingar
Salurinn heldur sjarmanum sem fylgir gamalli verbúð frá árinu 1926 en hann var tekinn í gegn með tilliti til góðrar aðstöðu fyrir kvikmyndasýningar, funda- og skemmtanahalds. 

Salurinn tekur 50 manns í standandi veislur fundi og fyrirlestra, og um 30 - 40 manns við borð.

Salinn er hægt að leigja án veitinga. En ef óskað er eftir veitingum mælum við með Höfninni, veitingastaðanum við hliðina á salnum.

Margs konar viðburði eða ferðir er hægt að skipuleggja í tengslum við aðstöðuna, s.s stuttar menningar- og fræðslugöngur um nágrenið sem enda svo með kvikmynd og gómsætum veitingum.   Í samstarfi við Höfnina býðst t.d kvikmyndasýning og kvöldverður.  Einnig er t.d. hægt að hafa lifandi fræðslu um þorrann með þorrablótinu, um ásatrú á Íslandi, list á Íslandi o.m.fl.
Sé óskað frekari þjónustu geta aðstandendur salarins boðið upp á ýmsa þjónustu.


Verbúðin gamla höfnin
Verbúð 2, Geirsgata 7b, 101
Reykjavík
Sími: 898 6628
verbudin@lifsmynd.is
www.lifsmynd.is/cinemano2

Teikningar
Hringmynd
Myndskeið

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar