Laxfoss er fundarherbergi fyrir 6 manns. Útbúið með þægilegum stólum, vandaðri lýsingu, flatskjá, tölvutengingum og flettitöflu.
Radisson Blu 1919 Hótel býður upp á 2 fundarherbergi. Þau eru útbúin samkvæmt þeim ströngu þjónustukröfum sem Radisson Blu-keðjan hefur þróað í samstarfi við The Meeting Professional
International-samtökin (MPI), sem er stærsti skipuleggjandi ráðstefna og funda á heimsvísu.
Radisson Blu 1919 Hótel er fjögurra störnu hótel með 88 herbergjum. Á hótelinu er starfræktur veitingastaður sem er margrómaður fyrir ljúffengan mat og notalega stemningu. Auk þess eru góðar setustofur og bar.


