Í salnum er dekkað langborð og það er margt í kring sem augað staldrar við. Fallegir munir, upprunalegur panill á veggjum skapa stemningu sem erfitt væri að leika eftir. Það ber með sér að hugsað hefur verið um staðinn af natni og metnaði.
Íburðarmikil setustofa er á 2. hæð hússins. Setustofan er aðgengileg fyrir gesti veitingahússins en einnig er hægt að panta hana með hæðinni. Hún hentar vel til að skipta upp stórum veislum eða fyrir þá sem vilja koma sér vel fyrir eftir mat.


