Caruso Herbergi 60 (2.hæð)

Fallegur og vel stílfærður salur

Bar á hæðinni
Góð aðstaða fyrir veislur og fundi
Gott útsýni


Nánari upplýsingar

Salurinn er á 2. hæð hússins og eins og önnur húsakynni Caruso er þessi salur einstaklega fallegur og vel stílfærður. Með fersk og falleg blóm á hverju borði og logandi kerti er vel hægt að ímynda sér að maður sé staddur í góðu yfirlæti á virðulegu menningarheimili á 4. áratugnum.

Í salnum eru fallegir gluggar með útsýni yfir Laugarveginn.

Salurinn hentar vel fyrir veislur og fundi og mun starfsfólk staðarins leggja sitt af mörkum til að gera stundina ógleymanlega.

Íburðarmikil setustofa  er á 2. hæð hússins. Setustofan er aðgengileg fyrir gesti veitingahússins en einnig er hægt að panta hana með hæðinni. Hún hentar vel til að skipta upp stórum veislum eða fyrir þá sem vilja koma sér vel fyrir eftir mat. 

Á sömu hæð eru salirnir  Herbergi 50 og Herbergi 65

Caruso Herbergi 60 (2.hæð)
Þingholtsstræti 1 101 Reykjavík
Sími: Birta símanúmer
www.caruso.is

Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

View Caruso á www.salir.is in a larger map