Skarfurinn - veislusalur

Glæsilegur fullbúinn salur- leigist með eða án veitinga

Rúmgóður og bjartur salur
Fallegt útsýni yfir Sundin blá og Viðey
Móttökueldhús, kaffivél og uppþvottavél
Næg bílastæði og gott aðgengi fyrir rútur
Svið, hljóðkerfi, hátalarar, hljóðnemi og mixer
Aukaherbergi er inn af salnum með góðri vinnuaðstöðu
Bar
Skarfurinn er einnig leigður án veitinga


Nánari upplýsingar
Skarfurinn er til leigu fyrir fermingar, árshátíðir og aðra mannfagnaði. Salurinn er í nýju og glæsilegu 240 fm húsnæði.
Húsið skiptist í 170 fm veislusal, kaffieldhús, bar og salerni. Salurinn rúmar 100 manns í sitjandi borðhaldi og 150 manns í standandi boði.

Skarfurinn er einnig leigður án veitinga.

ATHUGIÐ!  Skarfurinn verður ekki í útleigu í sumar, eða frá 5. maí til 15. okt.
 

Vetur: Skarfurinn er leigður út fyrir fundi, veislur og mannfagnaði yfir vetrartímann, eða á tímabilinu frá 15. okt. til 5. maí.

Sumar:
Á sumrin gegnir Skarfurinn hlutverki þjónustumiðstöðvar fyrir farþega skemmtiferðaskipa sem leggja við Skarfabakka, þ.e. mánuðina júní, júlí, ágúst og september.

Stórt 800 m2 bílastæði er fyrir framan húsið og komast því hátt í 100 einkabílar fyrir á planinu. Að sama skapi er gott aðgengi fyrir rútur að leggja við inngang hússins. Frábært útsýni er til norðurs, suðurs og vesturs.

Salurinn hentar vel fyrir:
   fermingar - mótttökur - brúðkaup - hanastélsboð
   vörukynningar - fyrirtækjafundi - blaðamannafundi - hópefli

Í salnum eru hringborð og komast tíu manns fyrir á hverju.  Borðin eru 10 talsins og tekur salurinn því 100 manns í sæti. Hægt er að raða þeim eftir hentisemi og hafa færri en 10 borð í salnum henti það betur. Borðbúnaður fylgir fyrir 100 veislugesti og 10 smekklegar kaffikönnur til að setja á hringborðin.

Svið er á staðnum með hljóðnema, hátalarakerfi og mixer.

Stórt barborð er í salnum með góðri vinnuaðstöðu.  Fyrir aftan barborðið er móttökueldhús með ísskáp, uppþvottavél og helstu áhöldum. Kaffivél til uppáhellingar og kaffibrúsar með pumpu.

Borðbúnaður fylgir fyrir 100 manns. Inn af salnum er aukaherbergi sem nýtist sem fatahengi, frálagsherbergi eða vinnuaðstaða. Á staðnum er rúmgóð salernisaðstaða með aðgengi fyrir fatlaða.

Skarfurinn - veislusalur
Skarfagarðar 8, 104
Reykjavík
Sími: 894 1718
hafsteinn@netvisir.is
www.skarfurinn.is

Kort

View Larger Map
Teikningar
Hringmynd
Myndskeið

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar