Dettifoss er rúmgóður fundarsalur sem tekur 20 manns við langborð. Í
salnum eru öll helstu tæki og áhöld sem þarf til fundarhalds s.s
þægilegir stólar með örmum, tússtafla, myndvarpi og tölvutengingar.
Vönduð lýsing og góð loftræsting.
Radisson Blu 1919 Hótel býður upp á 2 fundarherbergi. Þau eru útbúin samkvæmt þeim ströngu þjónustukröfum sem Radisson Blu-keðjan hefur þróað í samstarfi við The Meeting Professional
International-samtökin (MPI), sem er stærsti skipuleggjandi ráðstefna og funda á heimsvísu.
Radisson Blu 1919 Hótel er fjögurra stjörnu hótel með 88 herbergjum. Á hótelinu er starfræktur veitingastaður sem er margrómaður fyrir ljúffengan mat og notalega stemningu.
Auk þess eru góðar setustofur og bar.



