Edinborgarsalurinn er rúmlega 476 fm þegar hliðarsalurinn er talinn með.
þetta er fjölnota salur sem býður upp á góða aðstöðu fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur, fundi , málþing, kaupstefnur og fleira. Á sömu hæð er 219 fm veitingahús sem tekur 100 manns við borð.
Í suðurenda á 2. Hæð er Rögnvaldarsalur 114 fm ásamt tveimur smærri sölum, sem eru 55 og 45 fm. Auk þess að vera kennslusalir listaskólans henta þeir til mannamóta i sinni víðustu mynd.
Í Norðurenda á sömu hæð eru svalir yfir Edinborgarsal og tæknirými salarins.
Á þriðju hæð í risi eru tveir salir , samtals 141 fm rými. Rýmið er einstaklega fallegt þar sem það er undir reisulegu háaloftinu. Auk mannamóta geta félög jafnframt fengið aðstöðu undir starfsemi sína eins og gerðabækur og fundarhamarinn



