Grímsá - Sveitasetur

Einstök náttúrufegurð og glæsilegur húsakostur skapa þar hópum frábærar aðstæður

Aðeins um klukkustundar akstur frá Reykjavík
Einstök náttúrufegurð
Glæsilegur húsakostur
Gisting fyrir 20 til 40 manns
20 til 70 manns í mat
Ljúffeng matargerðarlist
Margskonar afþreying og hópefli í boði


Nánari upplýsingar
Það tekur aðeins um klukkustund að aka frá Reykjavík til Sveitasetursins við Grímsá. Hið glæsilega hús stendur við Grímsá sem stundum er kölluð Drottning laxveiðiánna. Hér skapar hið fagra og söguríka Borgarfjarðarhérað stórfenglega umgjörð fyrir fundi og mannfagnaði allan ársins hring.

Einstök náttúrufegurð og glæsilegur húsakostur skapa þar hópum frábærar aðstæður hvort sem erindið er námskeið, fundur, skemmtun, útivist, veisluhöld eða blanda af þessu öllu!

Athugið! aðstaðan er ekki til leigu frá 15 júni til 25. september.

Fundarstaðurinn – til árangurs fallinn
 
Fátt er betur fallið til fundarhalda en friðsælt og fagurt umhverfi, góður tækjakostur, kóngafæði, vistleg salarkynni og umfram allt einlægur vilji staðarhaldara til að gera dvölina árangursríka og ánægjulega.

Starfsfólk Sveitasetursins við Grímsá mun leggja metnað sinn í að aðstoða þig og þína að ná þeim árangri sem unnt er á meðan á dvölinni stendur.

Fundir og ráðstefnur – ánægja og afköst
 
Veiðihúsið við Grímsá er kjörinn vettvangur fyrir fundi og smærri ráðstefnur. Góð salarkynni, fullkominn tækjabúnaður skapa ytri skilyrði til árangurs, á meðan fallegt umhverfi og góðar veitingar blása mönnum andann í brjóst.

Tækifæri á hverju strái
 
Grímsá er vel í sveit sett í einu fegursta héraði landsins. Í samvinnu við þá sem vinna að ferðaþjónustu í Borgarfirði er lítið mál að skipuleggja hverskyns skemmtun í þessu stórkostlega umhverfi. Reiðtúrar, skotveiði, berjaferðir, sveppatínsla, sigling á kajak, snjósleðaferðir, gönguferðir svo fátt eitt sé nefnt. Síðan er stutt í sund eða golf.

Hvataferð til Grímsár – fyrir vel unnið starf
 
Dvöl á Sveitasetrinu við Grímsá við þær aðstæður sem þar er boðið upp á innandyra sem utan er ógleymanleg upplifun og tilvalin umbun fyrir vel unnin störf. Konungleg fæða, höfðingleg salarkynni og fagurt umhverfi með ótal möguleikum til hverskyns afþreyingar er vel til þess fallið að gera ánægt starfsfólk enn ánægðara.

Dægradvöl – allt mögulegt!


Grímsá - Sveitasetur
Fossási 311 Borgarfjörður
Sími: Birta símanúmer
www.hreggnasi.is

Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

View Larger Map

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar