Grand Hótel Reykjavík
- fyrsta flokks ráðstefnu- og veisluaðstaða
Á Grand Hótel Reykjaví er fyrsta flokks ráðstefnu- og veisluaðstaða. Um er að ræða 13 sali sem taka á bilinu 6 - 470 manns. Stærsti salurinn er Gullteigur og er hann jafnframt einn sá tæknivæddasti á landinu. Gullteigur getur rúmað allt að 470 manns í sæti auk þess sem 170 fermetra forrými salarins býður upp á marga möguleika s.s sýningarsvæði.
Ráðstefnudeildin á Grand Hótel Reykjavík er ávallt reiðubúin að aðstoða þig við skipulagningu og undirbúning ráðstefnu eða veisluhalda. Hvort heldur um er að ræða litla fundi, stórar ráðstefnur, fermingarveislur, brúðkaup, árshátíðir eða önnur einkasamkvæmi. Starfsfólkið í ráðstefnudeildinni leggur metnað sinn í að tilefnið heppnist sem best.