Caruso  fyrir veisluna
Caruso er rótgróinn veitingastaður á besta stað í bænum, á horni Laugavegs og Þingholtstrætis. Húsið sem er byggt árið 1892 ber með sér fallegan blæ gamla tímans og er vægast sagt ævintýralegur og rómantískur staður. Eigendur Caruso hafa í gegnum tíðina safnað fallegum húsgögnum og hlutum sem prýða staðinn einstaklega vel. Stíllinn er fjölbreyttur og stílhreinn og óhætt er að fullyrða að staðurinn á sér engan sinn líkan. Sjón er sögu ríkari!

Staðurinn er á þremur hæðum, á jarðhæð er veitingasalurinn en á 2. hæð eru 3 salir og setustofa. Í risinu eru svo tveir salir. Bar er á 2. og 3.  hæð sem og góð salernisaðstaða og fatahengi.

Caruso leggur áherslu á gæði í matargerð sinni og útilætur veglega diska svo enginn kemst svangur frá borði! Mögulegt er að fá ítalska og íslenska rétti en starfsfólk staðarins er sveigjanlegt og hefur mikla þjónustulund.
Caruso Maríustofa.
20 manns - Reykjavík
Notalegur veislusalur í hjarta borgarinnar. Skoða.
Caruso Antikstofan.
40 manns - Reykjavík
Fallegur salur í risi hússins.. Skoða.
Caruso Herbergi 60.
14 manns - Reykjavík
Fallegur og vel stílfærður salur. Skoða.
Caruso Herbergi 65.
12 manns - Reykjavík
Einstaklega fallegur salur sem hentar vel fyrir fundi,... Skoða.
Caruso - jarðhæð
56 manns - Reykjavík
Veitingasstaður. Skoða.
Caruso Herbergi 50.
28 manns - Reykjavík
Fallegur salur á 2. hæð. Skoða.
Ný mynd:
(155px bannerar)
(648px miðjumyndir)